Ingeborg heiti ég.
Ég bý í litlum kofa rétt fyrir utan borgina, umvafin skógi, vatni og fjöllum. Ástríða mín er allt sem tengir okkur aftur við okkur sjálf, umhverfið okkar og náttúruna. Þar sem samfélagið okkar er orðið svo stórt, og við þurfum ekki lengur að reiða fólkið í kringum okkur til þess að lifa af, þá hefur myndast ákveðið tilgangsleysi í loftinu. Við þurfum ekki lengur að kunna að lækna okkur, og þessi aftenging veldur allskyns lífstíls sjúkdómum, ójafnvægi og óhamingju. Eins og ég sé það, þá byrjum við að byggja okkur upp með því að fara tilbaka í það sem er að glatast. Náttúrulækningar, alvöru matur beint frá jörðinni, samfélag og virðing, þekking og traust á okkur sjálf eru lykilatriði.
Ég er með Bs gráðu í vestrænum grasalækningum frá University of Westminster í London. Ég lærði líka sjamanísk fræði hjá Otterdance School of Earth medicine, og nýlega lærði ég flotmeðferð hjá Flothettu. Auk þess hef ég verið að sérhæfa mig í kvennaheilsu, og held regluleg námskeið um það. Ég býð upp á einkaviðtöl fyrir hvern sem er, sem vill komast að rót vandans, og hætta að eltast við allskonar ruglandi heilsutrend. Það sem ég legg áherslu á er djúp næring og stressminnkun, svo að líkaminn fái það sem þarf til þess að vinna sína vinnu og heila sig sjálfur.
Á þessari síðu er ég með tvo lokaða hópa. Annarsvegar Jurtir og Fólk, og hinsvegar Systraspeki. Þú getur verið meðlimur í öðrumhvorum (1.600 á mánuði), eða báðum (2.200 á mánuði)! Ég sendi einfaldlega mánaðarlegan reikning í heimabankann.
Hér set ég reglulega inn myndbönd, texta eða hljóðupptökur, þar sem ég deili með ykkur allskyns fróðleik. Inná þessum lokuðu svæðum getur þú kommentað, búið til umræður og deilt eigin reynslu/visku.
JURTIR OG FÓLK
Þegar ég fékk fyrst áhuga á lækningajurtum og almennt um náttúrulegar lækningar, var engin staður fyrir mig að nálgast almennilegar upplýsingar á íslandi, nema úr fáeinum bókum. Ég leitaðist lengi eftir hópi fólks í kringum mig sem deildi svipuðu áhugamáli, og fann lítið. Á seinustu árum hefur áhugi á þessu vaxið mikið, og þess vegna ákvað ég að stofna þennan grundvöll, til þess að tengja fólk saman, og ýta undir meiri fræðslu um lækningajurtir. Með tímanum hef ég ákveðið að breikka aðeins umræðuefnið, og mun tala meira um almenna heilsu, vellíðan og náttúruspeki, auk þess að bæta inn efni um lækningajurtir hér og þar. Ég hlakka til að sjá þennan hóp þróast!
SYSTRASPEKI
Ég stofnaði þennan hóp vegna þess að mér fannst vanta almennilega fræðslu fyrir konur og hormónakerfið, líkama þeirra og heilsu. Hér set ég inn upplýsingar reglulega, og býð ykkur velkomnar að taka þátt í allskonar áhugaverðum umræðum. Við sáum hverjum frjóðleiksmola sem fræ að bættri framtíð fyrir heilsu kvenna, því konur eru ekki hannaðar til þess að dvelja í vanlíðan, heldur blómstra og lifa með hringrás náttúrunnar.
-Tíðahringurinn
-Einkenni og orsakir
-Hormónaheilsa
-Frjósemi
-Næring, jurtir og lífsstíll
...og margt fleira!